Gus gus snúa aftur

Óþreyjufullur og spenntur hef ég beðið eftir nýrri plötu Gus guss. Um daginn fékk ég loksins að heyra af henni eitt lag, þegar smáskífan “Add This Song” kom út. Lagið hefur ekki farið af fóninum síðan það kom á YouTube. Þarna er á leiðinni eitt af bestu lögum þeirra.

Lagið ber óneitanlega mikinn og sterkan Gus gus keim, enda af Gus-feðrum komið, en það sem mér þykir hvað smekklegast við það eru augljósu áhrifin og samblendni af fyrri plötum þeirra. Dálítið eins og Gus gus vs. T-World, Attention og Forever væri blandað saman.

Ég bíð spenntur eftir næstu smáskífu og / eða breiðskífunni, ef þetta stefnir í að verða svona geðveikt hjá þeim.